Flokkur: Efnispottur
Gleðilegt ár!
Nú hefst starfið að nýju eftir jólin. Barnaefnið er tilbúið á sínum stað og við horfum með eftirvæntingu til nýrra möguleika.
Hér á Biskupsstofu fáum við liðsauka í fræðslumálin: Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson verður með okkur í 3 mánuði frá 1.febrúar og Hildur Björk Hörpudóttir hefur verið ráðin prestur á Reykhóla. Þegar þetta er skrifað er ekki komin vígsludagsetning hjá henni. Reykhólaprestur hefur 50% starfshlutfall á Biskupsstofu og mun hún því nýtast okkur vel í fræðslumálunum.
Hildur Björk og Guðmundur Karl eru okkur hér af góðu kunn enda lagt okkur lið síðustu misserin.
Að fræðslumálum standa einnig undirrituð, Edda Möller hjá Skálholtsútgáfunni og Sr. Halldór Reynisson sem sér um fræðslumál tengd Skálholti.
Bestu kveðjur,
Elín Elísabet Jóhannsdóttir
ritstjóri Efnisveitunnar
Hér koma punktar frá umræðuhópum á Innandyranámskeiðunum haustið 2008
Vef Kristniboðssambandsins má nota á margvíslegan hátt í fræðslustarfinu
Sik.is
Þessi vefur er afar fróðlegur fyrir þá sem koma nálægt starfi innan kirkjunnar og þess virði að kíkja á hann og sjá hvað þar er að finna.
kirkjan.net
Hvað heita brúðurnar í sunnudagaskólanum?
Fyrirlestur Þórkötlu Aðalsteinsdóttur, sálfræðings á menntadegi presta 9.júní 2008