Flokkur: Páskar
Ýmislegt
Drög að helgileik. Hvernig mynduð þið útfæra þetta?
Páskaefni fyrir kirkjur og skóla sem fæst í Kirkjuhúsinu
Fróðleikur um dymbilviku og páska
Fróðleikur um dymbilviku og páska- sem má ljósrita og dreifa
Föndrum veifur t.d. fyrir pálmasunnudag
Perlað á krossa. Skemmtilegt hópverkefni fyrir alla aldurshópa
Hjálpargögn:
Best er að teikna þessa leyniteikningu á stórt karton því að í miðri frásögninni þarf að vera hægt að snúa blaðinu á hlið.
Munið að hafa skýran tússpenna og undirbúa ykkur vel.
Hér er fallegur trjágarður
með runnum 1 og grasi 2 og litlum kletti3.
Úr klettinum hafði verið höggvin út gröf, sem var eins og hellir
Þangað hafði líkami Jesú verið lagður eftir að hann dó á krossinum.
Stórum, þungum steini 5 hafði verið rúllað fyrir hellisopið .
Um morgun hins þriðja dags kom María Magdalena, Salóme og María hin gangandi til grafarinnar.
Þegar þær komu þangað urðu þær undrandi því að það var búið að rúlla steininum frá gröfinni6.
Gröfin var opin!
Þær litlu varlega inn, fyrst ein, svo önnur og loks sú þriðja.7.
Inni í gröfinni var engill og þær urðu hræddar.
(Snúið nú blaðinu/kartoninu til hægri og þá kemur engillinn í ljós! 8)
En engillinn sagði þeim að þær þyrftu ekki að vera hræddar.
,,Ég veit að þið eruð að leita að Jesú, sem var krossfestur. En hann er ekki lengur hér. Hann er upprisinn.
Farið og segið öllum
Úr Ser du vad det blev?
Hreyfimyndasería um pálmasunnudag
Myndasería um pálmasunnudag af Max7.com
Sagan um Benjamín- Innreiðin í Jerúsalem sögunni fylgir myndasería fyrir skjávarpa
Myndsería fyrir skjávarpa- vistuð sem Powerpoint skjal:
Sama myndasería en hér þarf tölvan að vera nettengd meðan á sýningu stendur.
Segja við börnin:
Á pálmasunnudag reið Jesús á litlum asna inn í Jerúsalem.
Mannfjöldinn hyllti hann eins og konung, enda er Jesús konungur.
Hann er ekki konungur eins og við þekkjum til hérna á jörðinni.
Jesús er konungur lífsins.
Sonur Guðs.
Ríki hans er Guðsríki.
Fólkið tók pálmagreinar af pálmatrjánum og veifaði þeim, hrópaði og söng og fagnaði komu Jesú.
Nú ætlum við einmitt að gera það sama.
Af því að við eigum ekki pálmagreinar (hér á Íslandi) höfum við útbúið svona greinar.
Allir fá eina grein.
Láta börnin gera:
Raðið börnunum upp þannig að þau myndi tvær raðir og látið ,,Jesús og asnann” ríða í gegn um ,,mannfjöldann” sem fagnar.
Það má láta börnin syngja sönginn: Hósíanna, lof og dýrð (98 í Sálmabók barnanna).
Gerður var sérstakur DVD diskur um Hafdísi og Klemma fyrir sunnudagskólann og annað barnastarf kirkjunnar árið 2011. Diskurinn fæst í Kirkjuhúsinu.
Fjórir styttri þættir sem fjalla um atburði og boðskap páskanna.
Það mætti spila tvo fyrri páskaþættina í dag.
Einnig er hægt er að spila þá fjóra mismunandi sunnudaga eða alla saman í einu.